Wednesday, June 25, 2008

Flúðir

Fórum í fyrstu útlegu sumarsins sem er óvenju seint hjá okkur en það var ferð með fótboltafélaginu Leiknir en Anton er þar á fullu að æfa. Það var ýmislegt gert eins og að synda í á, spilaður leikur við heimamenn sem við unnum að sjálfsögðu, farið á hestbak og pabbi Elmars kom á flugvél svo allir fengu að taka einn rúnt á henni.















Tuesday, June 3, 2008

Munaðarnes helgina 30.05.2008

Fórum á strandir að undirbúa bygginguna miklu á munaðarnesi , var blíðan þvílík að erfit var að vinna en það hafðist nú samt, fórum í bæinn á sunnudeginum úr bongó blíðu í rokrasskat.